27.8.2008 | 15:21
Tímasetning og englaheimsókn
Þá er kominn tími á aðgerðina en hún verður kl. 7:30 í fyrramálið. Dísa er búin að tala við lækninn um að spara ekki deyfinguna og helst vill hún hafa þetta á þann veg að hann eigi að hnippa reglulega í hana til að minna hana á að anda.
Hún er eðlilega áhyggjufull og því væri afar gott að fá eina góða bænabylgju frá ykkur stuðningshópnum. Þið hafið haldið yfir henni verndarhendi sem mun örugglega duga vel á lokasprettinum.
Og þá er komið að englaheimsókn, en Theodór Skúli Sigurðsson kom í heimsókn í morgun til frænku sinnar ásamt vini sínum Birgi, sem er í sérnámi í Osló. Það urðu fagnaðarfundi þegar þau frændsystkinin hittust og það var strax byrjað ræða málið á læknisfræðilegum nótum því piltarnir vildu fá að vita allt um "keisið" eðli málsins samkvæmt. Ég hins vegar týndi þræðinum á sjöttu mínútu þegar latínuútskýringarnar tóku völdin.
Mikið afskaplega var notalegt að fá þessa heimsókn og við hjónin afar þakklát fyrir ræktarsemina. Já, það má eiginlega segja að þetta hafi verið himnasending og englaheimsókn.
Englamyndir má svo finna í albúminu
Ég mun senda færslu fljótlega eftir að aðgerðinni lýkur á morgun
Kæe kveðja,
Ingi
Eldri færslur
Tenglar
Listi yfir góða tengla
Þetta eru tenglar yfir þá sem ég vill skoða daglega
- Moggavefurinn Besti vefur landsins
- Slóð á blogg Baldurs Legg til að þetta sé lesið vel
- Slóð á blogg Árna Lesa vel
- Slóð á blogg Skapta Og þetta er líka gott
Bloggið hans Ómars
Frábært blogg um náttúruvernd
- Bloggið hans Ómars Fínt blogg
Bla
Bla bla
Jói
Bloggið hans Jóa
Áhugavert efni
Bækur
Bókalistinn
Þetta er bókalistinn minn.
Athugasemdir
Halló elsku Addý og Ingi,það er búið að hafa samband á alla staði m.t.t. aðgerðar í fyrramálið og það verður vel beðið fyrir elsku Addý minni og þér Ingi.Kannski að þið verðið meðvituð um þann kraft sem verður sendur til ykkar héðan að heiman.Teddi var mjög ánægður að sjá frænku sína í morgun reyndar hissa á hvað Addý frænka væri bara hress þrátt fyrir allt sem búið er að vera í gangi.
Bestu kveðjur um að allt gangi vel á morgun bless elskur.
Ykkar Auda
Auður Ingibjörg (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 22:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.